Stuðningsbúðin

Okkur vantar ýmislegt fyrir starfsemina ef þú átt eftirfarandi eða vilt styrkja með greiðslu

Stuðningsbúðin

Stuðningsbúðin

Hér í stuðningsbúðinni okkar er hægt að styrkja okkur vegna kaupa á ýmsum búnaði á auðveldan hátt.

Til að styrkja félagið til kaupa á bátum eða búnaði þá smellir þú einfaldlega á Styrkja hnappinn og greiðir í vefverslun. Við sjáum svo um að kaupa búnaðinn fyrir starfsemi félagsins. Fyrir stærri styrki þá getur verið betra að millifæra beint á okkur. 

Ef þú vilt styrkja með fjárframlagi eða búnaði

Ef þú átt eitthvað af þeim hlutum sem okkur vantar og vilt styrkja starfsemina á þann hátt þá endilega hafðu samband og við skoðum málið. Við tökum bæði við nýjum og notuðum búnaði.

Þau sem styrkja félagið til bátakaupa fá forkaupsrétta á nafngift á viðkomandi bát svo og kaup á auglýsinga merkingum á bátinn. Félagið mun hafa samband við kaupendur báta eftir kaupinn með nánari upplýsingum um nafngiftir og aðrar merkingar. 

Auglýsingar á bátunum eru í tvö ár í einu.

Vinna er í gangi við að skrá félagið sem á almannaheillaskrá skattsins. Ef þú vilt styrkja félagið en bíða þar til sú skráning er komin í gegn eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við félagið þar sem við getum mögulega flýtt skráningunni um einhverjar vikur.

BJÖRGUNARVESTI

Öryggismál skipta okkur miklu máli og að vera í björgunarvesti er skylda fyrir alla sem eru á siglinga námskeiðum og æfingum hjá okkur. Við þurfum að eiga til björgunarvesti í fjölbreyttum númerum svo allir séu í réttri stærð af vestum. 

20.000kr

BLAUTBÚNINGAR

Við bjóðum foreldrum að fá blautbúninga fyrir krakkana þegar þau koma á námskeið. Þannig getum við betur tryggt að allir séu rétt klæddir fyrir námskeið hjá okkur.

17.000kr

KAJAKAR

Við kennum krökkum á sumarnámskeiðum hjá okkur fyrstu skrefin á kajökum. Við viljum nota Sit On Top (SOT) báta í barnastarfinu hjá okkur og eiga nægilega marga svo allir krakkarnir geti verið á sjó á sama tíma. 

210.000kr

TALSTÖÐVAR

Þjálfararnir okkar nota talstöðvar til að eiga í samskiptum sín á milli úti á sjó. Við þurfum því að eiga nokkur stykki. Í almenna starfið okkar við Arnarnesvoginn þá duga hefðbundnar útivistar talstöðvar en best er ef þær eru vatnsvarðar og fljóta.

30.000kr

VERKFÆRAKASSI

Við þurfum að geta brugðist skjótt við ef eitthvað bilar eða ef það þarf að skrúfa að líma hluti. Það að koma okkur upp góðum verkfærakassa kostar talsvert en nýtist í mörg ár. Með góðum verkfærum og viðhaldi þá getum við nýtt búnaðinn okkar í lengri tíma. Þú getur styrkt okkur í að safna í kassann.

10.000kr

GASGRILL

Í lok viku löngu sumarnámskeiðanna hjá okkur þá viljum við grilla með krökkunum. Í sumar höfum við verið með gasgrill í láni en við þurfum að eignast okkar eigið gasgrill.

150.000kr

MERKING/AUGLÝSINGAR Á BÁT

Við bjóðum fyrirtækjum að kaupa merkingar á bátana okkar til að styrkja starfsemi félagsins. Þeir sem kaupa báta hafa forkaupsrétt á merkingum og nafngiftum. Til að byrja með bjóðum við upp á merkingar á minni bátunum okkar kænum og kajökum. Hver merking er í lágmark tvö ár og fyrstu tvö árin (2026 og 2027) er eingöngu ein merking per bát.

50.000kr

RS QUEST 

Við viljum eignast RS Quest kænur. Þessar kænur eru frábærar vil að kenna krökkum fyrstu handtökin í siglingum. Þær eru nægilega stjórar svo það er auðvelt fyrir þjálfara að vera um borð með krökkunum. Í unglingahópum nýtast þær einnig til að æfa að vera með 2-3 manna áhöfn.

2.000.000kr

RÓÐRARBRETTI

Þá daga þegar það er of mikið logn til að sigla þá er gaman að taka fram róðrarbretti. Á sumarnámskeiðunum okkar þá kennum við á róðrarbretti og höfum meira að segja fengið til okkar sérhæfðan róðrarbrettaþjálfara.

50.000kr

ÖRYGGISBÁTUR

Það eru strangar reglur í siglingastarfi um fjölda öryggisbáta á móti kænum. Við erum að leita okkur að bátum sem eru harðbotna slöngubátar með stýri í miðju. Mótorinn þarf að hæfa bátnum og ekki of öflugur því það krefst nákvæmni að koma upp að hlið kænu á vélbát. 

4.500.000kr

KJÖLBÁTUR 

Félagið stefnir á að eignast seglbát sem mundi nýtast í kennslu, við æfingar og í keppnum. Við viljum því eignast J/70 eða sambærilegan bát. 

10.000.000kr