Atvinna í boði

Atvinnuauglýsingar fyrir sumarnámskeið 2026

Þjálfarar, leiðbeinendur og kennara

Siglingafélagið Vogur, Garðabæ óskar eftir þjálfurum, leiðbeinendum og kennurum til að kenna á hinum ýmsu námskeiðum félagsins. 

Við leitum að fólki til kennslu við:

  • Leikjanámskeið við sjóinn
  • Kænur
  • Kajaka
  • Kjölbáta
  • Róður
  • Sjósund
  • Öryggisbáta

Bæði er um að ræða fullt starf yfir sumarið á sumarnámskeiðum og/eða stök námskeið á daginn, um kvöldin eða um helgar. Byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið svo og sérnámskeið og einkakennslu.

Viðkomandi getur mótað námskeið með félaginu.

Ef þú vilt sækja um starfið þá sendu okkur póst á arnarvogur@gmail.com

Öryggisbátur og aðstoð í landi – kvöld og helgar

Siglingafélagið Vogur, Garðabæ óskar eftir starfsmönnum til að standa vaktina á öryggisbátum félagsins ásamt tilfallandi aðstoð í landi við sjósetningu á bátum og öðru tilfallandi.

  • Lágmarksaldur 18 ár
  • Starfsmenn fá þjálfun í vinnu á öryggisbát

Þetta er aukavinna nokkra klukkutíma í viku fyrir fasta upphæð sem verktakagreiðsla. Unnið er þegar opið er fyrir almenning sem áætlað er að sé einn seinnipartur um miðja viku og einn dag um helgar. Einnig á öðrum viðburðum t.d. mótum. Reynt verður að fá nokkra aðila í þetta sem skipta þá dögunum á milli sín. Ef mikill fjöldi er á sjó þarf meira en einn öryggisbát.

Félagið mun bjóða upp á þjálfun í notkun öryggisbátana. Þekking á fyrstu hjálp kostur. Félagið mun greiða fyrir skyndihjálparnámskeið fyrir þá sem eru að vinna reglubundið á öryggisbát fyrir félagið.

Ef þú vilt sækja um starfið þá sendu okkur póst á arnarvogur@gmail.com

 

Aðstoðarleiðbeinendur sumarnámskeiða

Aðstoðarleiðbeinendur óskast á sumarnámskeið hjá Siglingafélaginu Vogi, Garðabæ.

Sumarnámskeiðin fara fram á lóð félagsins við Ránargrund 2. Námskeiðin eru ætluð börnum 10 ára og eldri. Um eru að ræða bæði byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið.

Helstu verkefni

  • Aðstoð við þjálfara/leiðbeinendur á námskeiðum
  • Sjósetning báta fyrir námskeið
  • Öryggisgæsla á öryggisbátum félagsins (félagið mun þjálfa viðkomandi í því starfi)
  • Frágangur og þrif í lok hvers dags samkvæmt ákvörðun forstöðumanns

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af starfi með börnum æskileg
  • Umsækjendur skulu vera 18 eða eldri

Starfstími 6-8 vikur, umsemjanlegt. Möguleiki á aukavinnu um kvöld og helgar.

Ef þú vilt sækja um starfið þá sendu okkur póst á arnarvogur@gmail.com

Sækja um starf

Þú getur sótt um störfin hjá okkur með því að senda tölvupóst á arnarvogur@gmail.com.