Nú er endurvakning Siglingaklúbbsins Vogs í Garðabæ í fullum gangi. Við erum að uppfæra vefsíðuna og skrifa niður sögu félagsins og safna myndum af starfinu. Ef þú sigldir einhvern tímann með okkur, átt sögur eða myndir þá viljum við endilega heyra í þér.

Fyrstu fréttir sem við höfum fundið á tímarit.is eru frá 1975 og segja frá því að félagið hafi verið stofnað árinu áður. Félagið á því langa sögu í Garðabæ enda Arnarnesvogurinn einstak svæði til siglinga.

Þú getur sent okkur tölvupóst á arnarvogur@gmail.com eða skilaboð hérna á Facebook.